Leikarinn, leikstjórinn og goðsögnin Clint Eastwood er skilinn við eiginkonu sína Dinu. Þau hafa ekki búið saman í ár og ekki sést opinberlega saman síðan í nóvember árið 2011.
Aldursmunurinn á Dinu og Clint er töluverður en hann er heil 35 ár, þau eiga saman eina dóttur hina sextán ára gömlu Morgan en samtals á Clint sjö börn með fimm konum svo það er greinilegt að kappinn var vinsæll til undaneldis á sínum yngri árum en hann var þekktur fyrir það að vera svokallaður “kvennamaður”.
Dina hefur þjáðst af miklum kvíða og stressi undanfarin ár og hefur leitað sér hjálpar vegna þess, einnig hefur verið orðrómur á kreiki að hún hafi verið að misnota lyf.
Þetta hafði Clint einu sinni að segja um hjónabandið, þá nýskilinn:
Þeir segja að hjónabönd séu gerð í himnaríki en það er ekkert nema þrumur og eldingar. Það er aðeins ein leið að hamingjusömu hjónabandi og þegar ég hef fundið hana mun ég gifta mig aftur.
Árið 1997 sagðist hann haf leyst ráðgátuna að hamingjusömu hjónabandi en þá var Dina komin í líf hans og þau giftu sig síðar. Þau kynntust á góðgerðarsamkomu þar sem þau sátu hlið við hlið.
Michael Douglas og Catherine Zeta Jones tilkynntu einnig í vikunni að þau ætli að skilja, eru “gömlu góðu” hjónaböndin að hrynja hvert af öðru í glysborginni?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig