Karen Millen er þekkt fyrir fallega og kvenlega hönnun og nýja línan frá þeim veldur ekki vonbrigðum:
Mikið ber á fallegum sniðum, röndum og bláum og gulum litum og kjólarnir eru sérstaklega flottir. Karen leikur sér með snið og mismunandi einföld mustur.
Mikil áhersla er lögð á klassíkina en það er líka gaman að fá smá liti inn í vorin sem er einmitt á næsta leiti.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.