Ofurfyrirsætan Cindy Crawford var stórglæsileg á rauða dreglinum þegar kvikmyndin The Great Gatsby var sýnd á Cannes kvikmyndahátíðinni.
Það mætti halda að Cindy væri með æskubrunn heima hjá sér eða búin að finna upp leyndardóminn að eilífri æsku því jiminn eini sú lítur vel út! Cindy á tvö börn sem eru 11 og 13 ára en hún virðist vera eins og allar hinar ofurfyrirsæturnar og kemur sér í form á mettíma eftir barnsburð.
Cindy hefur þó viðurkennt það að hún hafi farið í eitt eða fleiri skipti í “smá” Bótox til að fylla pínu í hrukkurnar en það er þó ekki að sjá að hún hafi farið yfir strikið í Bótox sprautun! Hún elskar einnig hrukkurkrem og fleira fínerí eins og sannri pjattrófu sæmir en margar fyrirsætur lofa og dásama hin ýmsu hrukkukrem.
Fyrirsætan var í síðum hvítum kjól sem faðmaði líkamann og sýndi mikla brjóstaskoru, hárið var fallega blásið og beauty bletturinn fyrir ofan vörina hennar er ennþá á sínum stað en hann hefur orðið “trademark” Cindy í gegnum árin.
Já, það er óhætt að segja að Cindy sé ennþá með’etta og ljósmyndararnir á hátíðinni voru æstir í að ná myndum af Cindy á rauða dreglinum…
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig