Ofurfyrirsætan Christy Turlington var ein sú heitasta í bransanum hér á árum áður en í dag nýtur hún þess að vera með börnunum sínum í rólegheitunum.
Christy segir að hún njóti þess meira að fá verkefni núna heldur en þegar hún var fyrirsæta hér á árum áður og það var “starfið” hennar. Hún sé reyndar afar vandlát á þá ljósmyndara sem fái að mynda sig og allur hópurinn í kringum ljósmyndarann skipti gríðarlega miklu máli.
Henni finnst ekki eins skemmtilegt og áður að láta mynda sig en ef hún lætur til leiðast skiptir fagmennskan hana öllu því henni finnst hún gríðarlega berskjölduð fyrir framan myndavélina. Þessvegna vill hún bara starfa með þeim sem hún treystir fullkomlega.
Aðalfókusinn í lífi Christy núna eru börnin. Hún passar sig að njóta hvers augnabliks með þeim og vil helst vera með þeim öllum stundum!
Glæsileg fyrirsæta sem er greinilega með fæturnar á jörðinni og myndirnar, vavavúmm! Henni hefur greinilega ekki liðið illa í þessari myndatöku enda stellingarnar mjög spes…
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig