Söngkonan Christina Aguilera lét hafa eftir sér fyrr á þessu ári að henni væri nú slétt sama þó hún væri með nokkur aukakíló á sér.
Christina sagðist vera stolt af því að vera “curvy” kona og rassinn og lærin ekkert tiltökumál en söngkonan var harðlega gagnrýnd á síðasta ári fyrir að hafa bætt aðeins á sig. Staðreyndin er hinsvegar sú að hún var alls ekki feit heldur eiginlega bara eðlileg.
Núna hefur hún tekið 360°snúning og er orðin verulega grönn, bringubeinin eru farin að sjást og úlnliðirnir eru afar grannir. Hún kom fram í lokaþætti af “The Voice” ásamt Lady Gaga og var Christina mjög grönn við hliðina á Gaga sem er nú ekki með mikið hold utan á sér.
Það er ótrúlegt hvað stjörnurnar virðast ganga langt til þess að líta “vel” út enda pressan á þeim gífurleg, ekki það að mér finnist svona útlit mikið aðlaðandi (og ath að mitt álit endurspeglar ekki álit annara pjattpenna) og oftar en ekki ganga þær of langt og verða of grannar og fara í of margar aðgerðir.
En hvað finnst þér, – gekk Christina of langt í megruninni eða er hún bara að reyna að eltast við fegurðarstaðla Hollywoodborgar?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig