Söngkonan Christina Aguilera var tágrönn og nett þegar hún mætti í viðtal við Jay Leno síðasta miðvikudag en hún hefur lagt mikið af upp á síðkastið.
Salurinn var fullur af hermönnum svo stemmingin í þætti Leno var ansi hress, sérstaklega þar sem Christina flaggaði kynþokkanum í fulla stöng. Var í sjóliðafötum, mjög svo flegnum bol og níðþröngu pilsi.
Segja má að Christina hafi verið í nákvæmlega sömu stemmningu og árið 2007 þegar hún kom líka fram í sjóliðafatnaði í þættinum en síðan hefur hún eignast eitt barn og er búin að þyngjast og léttast á víxl með tilheyrandi athygli frá slúðurpressunni.
Ekki er langt síðan hún fékk á sig nokkuð harða gagnrýni fyrir að vera of þung. Hún reyndi að verjast þessu eftir fremsta megni en ekki leið á löngu þar til daman lét undan pressunni og lengdi tímann á hlaupabrettinu.
Hér má sjá myndir af Christinu fyrir um sléttu ári síðan en þá bað hún mannskapinn að róa sig. Það er ekki einfalt líf að vera poppstjarna, svo mikið er víst.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.