Söngkonan Christina Aguilera lét undan þrýstingi frá fjölmiðlum og öðrum sem voru alltaf að kalla hana feita eftir að hún bætti á sig nokkrum kílóum.
Til að byrja með reyndi hún að malda í móinn en gafst svo upp og grennti sig. Söngkonan er búin að missa tíu kíló upp á síðkastið og lítur fantavel út eins og alltaf en hún var komin með nóg af mikilli gagnrýni.
Hún tók mataræðið í gegn og hreyfir sig mikið. Söngfuglinn stundar Jóga og lyftir lóðum en henni finnst frábært að fara í salinn og “rífa í lóðin” eins og Ragga nagli myndi kalla það.
Christina hefur einnig tileinkað sér nýja matarsiði. Hún borðar sirka 1600 kaloríur á dag; túnfisk, steikur, blómkál, quinoa graut og grillmat. Hún gerði þetta algörlega upp á eigin spýtur og fer á netið til þess að reikna út hversu mikið hún má borða í einu en þannig reiknar hún einnig út sína daglegu neyslu.
Er þetta gott eða slæmt? Christina var alls ekki ólagleg eða of feit áður en hún grenntist. Eða hvað?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig