Leikkonan, tískuhönnuðurinn og módelið Chloe Sevigny lítur vel út á forsíðu Elle.
Nýjasta eintakið af breska Elle inniheldur viðtal og myndaseríu af pæjunni Chloe Sevigne.
Chloe, sem leikur meðal annars í þáttunum Big Love prýðir einnig forsíðuna.
Í viðtalinu segist hún vera nýlega byrjuð að æfa jóga þrisvar í viku og að jógað veiti vellíðan. Aðspurð út í sambönd segir hún að mönnum stafi ógn af henni og vinir hennar séu alltaf að segja henni að hún þurfi að finna sér mann sem er frægari en hún og geti höndlað alla athyglina sem hún fær.
Þegar hún er svo spurð hvort að hún hræðist það að eldast segist hún alls ekki hræðist það að verða eldri en talar um “baby pressure” því henni langi til að eignast barn.
Mjög flott myndaröð af henni eftir ljósmyndarann Rankin.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.