Söngkonan Cher hefur lítið sem ekkert látið í sér heyra síðastliðin tólf ár en núna er daman snúin aftur með hvelli, ný plata, nýtt myndband og nýtt lúkk!
Nýja platan hennar heitir Closer To The Truth. Framan á plötuumslaginu er mynd af Cher með platínuljóst hár og í sexý náttkjól en söngkonan segir sjálf að myndin sé með Playboy “effectum” til þess að gera sig yngri og flottari.
Cher er þekkt fyrir að hafa farið í fjöldann allan af lýtaaðgerðum. Hún er líka með “létt” bótox í andlitinu og líkama eins og tvítug hnáta. Var ekki einhverntímann orðrómur um að hún hefði látið fjarlægja úr sér rifbein? Svei mér þá!
Á nýju plötunni fær hún unga og heita listamenn til liðs við sig svo sem Timbaland og Pink. Hún tók einnig upp dúett með Lady Gaga en Gaga var ekki sátt við lagið og það fékk því ekki að fljóta með. Cher fannst lagið hinsvegar vera einn besti dúett sem hún hefur tekið þátt í, greinilega listrænn ágreiningur þarna á ferðinni.
Cher er svo ánægð með plötuna að hún segir hana vera sína bestu hingað til! Hlustaðu og sjáðu lagið “Woman’s World” hér að neðan og dæmdu sjálf.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=JjPWL-23w-w[/youtube]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig