Chelsea Handler hafnaði tilboði Playboy um að sitja nakin fyrir hjá tímaritinu vegna fjölskyldu sinnar.
Spjallþáttadrottningin segist hafa hafnað boðinu vegna þess að hún var hrædd um að bræður hennar myndu móðgast.
„Ég tel að enginn af bræðrum mínum þurfi að sjá á mér bert klofið,“ sagði Chelsea. „Ég hef ekkert á móti nekt en ég þarf ekki að bera á mér píkuna í tímariti.“
Einmitt. Hvaða bróðir sækist eftir því að sjá systur sína nakta?
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.