Leikarinn og vandræðagemsinn Charlie Sheen er nú staddur á Íslandi og kom aðdáendum sínum heldur betur á óvart á Twitter.
Charlie setti þetta á Twitter síðuna sína:
“this is the house where M Gorbachev R Reagan did some epic. it’s also where S and I GOT MARRIED! c #RumorMillUhPede,” Sheen tweeted on Sunday.
Eða: Þetta er húsið þar sem Gorbachev og Ronald Reagan hittust, þetta er líka staðurinn þar sem að S og ég GIFTUM OKKUR.
S stendur fyrir Scottie en konan/unnustan/ kærastan hans er oft kölluð Scottie.
Charlie lét einnig fylgja mynd af sér og Scottie fyrir framan Höfða þar sem þau sátu á tröppunum. Ef þetta er satt þá er þetta í fjórða sinn sem Charlie gengur í hjónaband.
Fjölmiðlafulltrúi Charlie segir hinsvegar að kappinn sé ekki giftur, hann hafi bara verið að fíflast í fólki, sei sei og svei Charlie þó – eða hvað?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig