Hollywoodhönkið Channing Tatum og konan hans Jenna fengu litla dömu í heiminn þann 31 maí síðastliðinn.
Hjónin eru alsæl með stelpuna og hafa nefnt hana Everly. Þetta staðfestu þau á heimasíðu Channing en þar settu þau texta sem stóð á “Velkomin í heiminn” og að dóttir þeirra hefði fæðst þann 31 maí í London.
Hjónin búa í London um þessar mundir en leikarinn er við tökur á kvikmynd þar í borg og hafa Jenna og Channing sést á vappi um undanfarnar vikur með hundana sína. Þau hafa látið fara vel um sig í lúxuxíbúð og er sundlaug í kjallaranum hjá þeim svo að eitthvað sé nefnt.
Að sjálfsögðu eru þau alsæl með litlu dömuna sína og hlakka til að takast á við foreldrahlutverkið.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig