Channing Tatum er nýbakaður faðir og honum finnst það yndislegt…
Leikarinn er á fullu núna að kynna kvikmyndina sína White House Down en eiginkonan hans Jenna Dewan Tatum slakar á með litlu snúllunni þeirra á meðan. Channing segir að dóttir þeirra Everly sé það fallegasta sem hann hafi séð og honum finnist lífið vera frábært þessa stundina.
Channing segir einnig að hann vilji eyða sem mestum tíma með mæðgunum og þegar hann er nálægt Everly þá geti hann ekki beðið eftir því að halda á henni á hverjum degi.
Hann vilji nánast alltaf vera með hana í fanginu og finnst allt, já allt sem hún gerir spennandi. Hann lét það líka út úr sér hlægjandi að honum þætti ótrúlega spennandi þegar hún kúkar, í því samhengi að það væri furðulegt hvernig svona agnarsmá mannvera kúkar. — Ok?
Channing segir einnig að Jenna sé afar þreytt enda nýbökuð móðir í fyrsta sinn og það eina sem hann geti gert sé að vera til staðar og færa henni það sem henni vantar á hverri stundu.
Channing er greinilega yfir sig hrifinn af litlu hnátunni sinni og Jenna er svo sannarlega heppin að eiga svo góðan barnsföður.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig