Chanel Resort 2010 Coco on the Lido: Bryggja, sólsetrið í bakgrunni, heitur sandur, öldurnar slást á ströndinni á meðan léttur sumarvindurinn strýkur vanga boðsgesta.
Ljóðrænt umhverfið við strendur Venice Lido er ekki amaleg staðsetning á nýjustu tískusýningu Karls Lagerfeld fyrir tískuhús Chanel.
Er ekki frá því það glitti í 1930 tímann, fallegur elegant fatnaður, töff förðun og villtar krullur í hárið.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.