Leikarahjónin Catherine Zeta Jones og Michael Douglas hafa ákveðið að fara hvort sína leið eftir þrettán ára hjónaband.
Michael og Catherine hafa ekki sést saman opinberlega síðan 22. apríl síðastliðinn en þá gengu þau saman rauða dregilinn á Cannes kvikmyndahátíðinni. Þessar fréttir koma mörgum í opna skjöldu en aldursmunur á þeim er 25 ár. Þau eiga saman tvo syni sem eru þrettán og tíu ára gamlir.
Hvorugt þeirra hefur sótt löglega um skilnað en þau hafa farið í frí í sitthvoru lagi undanfarið, gengið ein niður rauða dregilinn og núna er Michael í fríi í Sardiníu á meðan að Catherine er heima í New York með börnin.
Það hefur ýmislegt gengið á í hjónabandi þeirra en Michael barðist við krabbamein árið 2010 og Catherine þjáist af geðhvarfasýki og hefur verið að leita sér meðferðar vegna þess undanfarið en hún er nýbúin í einni slíkri.
Catherine og Michael segja að hvernig sem allt fari þá muni þau hafa hagsmuni drengjanna sinna að leiðarljósi og muni hugsa þetta allt til enda en vinir þeirra vona að þau nái að leysa þennan ágreining á milli sín og taki saman aftur.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig