Hin landsþekkta Catalina Ncoco á og rekur tískuverslunina Miss Miss í Holtagörðum og nú er hún komin í markaðssetningu á netinu.
Til stendur að gefa 250.000 kr þegar komnir eru 10.000 aðdáendur á Facebook en á Fésbókarsíðu Miss Miss blasir við mynd af seðlunum ásamt þessum texta:
Halló halló…Miss Miss tískuverslunin, ætlar gefa einhverjum heppnum sem setur like á síðuna 250.000 kr, þegar 10.000 like eru komin þá mun einhver fáranlega heppin fá þann pening og mynd af sigurvegaranum verður birt hér á síðunni,kvittið,deilið og setið like á síðuna.
Í Miss Miss í Holtagörðum er að finna fjölbreyttan kvenfatnað sem Catalina flytur sjálf inn m.a. frá Ítalíu. Catalina opnaði verslunina fyrr á árinu en hún lauk stílistanámi í fyrra. Hér er Miss Miss á Facebook.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.