“Það eru ekki fötin sem menn vilja heldur það sem þau hylja,” segir skemmtilegt íslenskt máltæki og miðað við klæðnað Carmen Electra í gær þá vildi hún bjóða upp á bæði í einu…
… enda mætti bomban í gegnsæjum kjól á deit með fyrrverandi Trommara Blink 182. Já eða, hún heldur því reyndar fram að þetta hafi ekki verið deit heldur þau bara vinir. Við Pjattrófur förum líka ALLTAF í svona kjólum á deit með vinum okkar. Ekkert eðlilegra.
Daman hefur reyndar löngum haft gaman af félagsskap rokkara en hún var eitt sinn bendluð við bæði Tommy Lee úr Mötley Crüe og Fred Durst úr Limp Bizkit.
Carmen er reyndar meðal þeirra stjarna sem segist sjá eftir því að hafa á sínum tíma farið í brjóstastækkun en það ber ekki mikið á skömm hjá henni þarna. Allt til sýnis. Spurning hvort hún sé nýbúin í annari aðgerð? Gæti verið.
Hún sá að minnsta kosti enga ástæðu til að fela neitt fyrir vini sínum við matarborðið.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.