Fyrrverandi Baywatch bomban Carmen Electra skellti sér aftur í rauða sundbolinn og leið betur í honum núna heldur en þegar hún lék í þáttunum.
Fyrirsætan kveið mikið fyrir því að fara aftur í sundbolinn en þegar hún var komin í hann leið henni dásamlega. Hún segir að hún sé mun sáttari við líkama sinn núna heldur en þegar hún var tuttugu og fimm ára. Carmen þakkar helbrigðum lífstíl og góðu mataræði fyrir það hversu vel henni líður í eigin skinni.
Carmen æfði ballet á sínum yngri árum og segist enn fylgja þeim aga sem ballettinn gaf henni. Hún borðar mikið af próteinum og grænmeti og elskar að dansa.
Carmen hefur setið fyrir í Playboy tímaritinu nokkrum sinnum og er alveg til í að gera það aftur en hún á þriðju söluhæstu forsíðuna í sögu Playboy tímaritsins og er mjög ánægð með það.
Simon Cowell og Carmen eru nýhætt saman en fyrirsætan virðist samt sem áður vera alsæl með lífið og bíður ennþá eftir hinum eina sanna.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig