Carey Mulligan er ung leikkona sem sló í gegn í myndinni Pride & Prejudice…
Mér finnst hún eitthvað svo sæt, lítil og krúttleg og klippingin fer henni ótrúlega vel. Hún er hittir alltaf í mark í klæðarburði. Ég veit ekki hvort það er bara stutta hárið eða hvað, en hún minnir mig rosalega mikið á Twiggy á sínum bestu árum.
Hún er ekkert að flækja málin mikið þegar hún klæðir sig, einfaldar flíkur og lítið af aukahlutum. Samt alltaf FLOTT. Ekki margar konur sem geta það að mínu mati.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.