Ofurfyrirsætan Cara Delevingne kynntist heitasta átrúnaðargoði sínu um helgina en sá kemur aðeins á óvart. Goðið er nefninlega Jack Black.
Þau hittust á Comic Con í San Diego um helgina sem leið en eftir hittinginn birti Cara myndir af sér með hetjunni sinni á Instagram.
Burberry fyrirsætan á fullt af vinum úr skemmtanabransanum, meðal annars Rihönnu, Ritu Ora og Harry Styles en nú er hún líka komin með númerið hjá Jack Black.
Við myndirnar skrifaði hún “Ég hitti átrúnaðargoðið mitt í dag… Hinn eina sanna JACK BLACK! Ég held að við höfum verið aðskilin í fæðingu.”
Leikarinn knái virtist líka glaður með kynninn af Cöru en hann brosir sætt á myndinni (eða vandræðalega?)
Jack var mættur á Comic Con til að kynna nýjustu mynd sína Goosebumps sem er gerð eftir samnefndri teiknimyndasögu R.L. Stine.
Gaman er að segja frá því, svona hér í leiðinni, að Cara er nýjasta andlit Top Shop fyrir haust og vetur 2014 og tekur sér þannig sæti með Kate Moss sem hefur löngum starfað með Top Shop. Svo er bara að bíða og sjá hvort ekki komi út Cöru lína?
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.