Það er óhætt að segja að ofurmódelið Cara Delevingne sé sú heitasta í bransanum í dag eða eins og Vogue í Ástralíu kallar hana “Miss Cool”.
Fyrirsætan er á forsíðu blaðsins og í myndaþætti inn í því. Hún hefur verið á forsíðu allra helstu tískublaðanna undanfarna mánuði og frægðarsól hennar sem fyrirsætu fer ört hækkandi dag frá degi en tískuhúsin berjast um að fá þessa fegurð í auglýsingaherferðir og til að ganga á tískupöllunum fyrir sig.
Cara tók að sjálfsögðu þátt í tískuvikunni í New York en þegar hún var að fara að sýna fyrir Louis Vuitton áttu förðunarfræðingarnir baksviðs fullt í fangi með að fela Psoriasis bletti fyrirsætunnar. Hún er með exemið sem virtist magnast upp þegar kom að tískuvikunni en psoriasis á það til að koma í ljós þegar stress og álag herjar á líkamann.
Engin önnur en Kate Moss kom baksviðs og spurði hvað væri að gerast þegar hún sá blettina á Cöru. Kate pantaði strax tíma hjá húðsjúkdómalækni fyrir stallsystur sína sem fór til hans seinna um daginn og fékk dygga aðstoð til að ná niður útbrotunum.
Hver segir að fyrirsætur skemmi bara fyrir hvor annari? Kate Moss er greinilega annt um stallsystur sínar og hún hækkaði töluvert í áliti hjá mér núna!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig