Leikkonan Cameron Diaz virðist vera farin að deita leikarann Jason Segel (33) sem er hvað þekktastur fyrir að leika í þáttunum “How I Met Your Mother”.
Cameron og Jason sáust afar innileg á stefnumóti á dögunum en sjónarvottar segja að þau hafi verið mjög náin, hlegið og látið eins og þau væru á stefnumóti.
Þau hafa einnig sést versla saman en leikararnir kynntust fyrst við tökur á kvikmyndinni “Bad Teacher”. Þau kysstust í myndninni og Jason grínaðist með að kossinn hefði verið mjög góður- fyrir hana!
Jason var með leikkonunni Michelle Williams um tíma en það slitnaði uppúr því sambandi fyrr á árinu.
Jason og Cameron eru að fara að leika saman í nýrri kvikmynd en þar segir frá hjónum sem taka upp kynlífsmyndband og myndbandið týnist eða fer á flakk og allt fer í háaloft.
Ætli að Cameron sé komin á fast og hafi bara verið að daðra við kærasta Lady Gaga? Við skulum vona það.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig