Ljóshærða fegurðardísin Cameron Diaz (40) er víst orðin ansi náin kærasta Lady Gaga en hún leikur á móti honum í kvikmynd um þessar mundir.
Myndin heitir The Other Woman en þau Taylor Kinney (31), sem hefur verið kærasti ofursöngkonunnar í um tvö ár, leika bæði stór hlutverk í myndinni.
Kunnugir segja að þessi tvö hafi náð einstaklega vel saman meðan tökur hafa staðið yfir, svo vel að þau virðast nýta hvert tækifæri til að gera eitthvað saman.
Til dæmis fara þau alltaf í mat saman á setti og einnig utan vinnutíma en þá hafa þau sést á kaffihúsum og veitingastöðum. Þau voru víst ansi mikið ofan í hvort öðru í afmælispartý Kate Upton sem einnig leikur í myndinni.
Innanbúðarmenn hjá Lady Gaga segja fréttirnar hafa náð tökum á söngkonunni sem er víst í ójafnvægi yfir þessu og ekki á það bætandi því hún ku vera að reyna að jafna sig eftir aðgerð á mjöðm.
Taylor á meðal annars að hafa kynnt Cameron fyrir fjölskyldu sinni en auðvitað hefur hann líka nokkuð góða afsökun að gefa Gaga… þau eru jú að vinna saman þau Cameron.
Svo er örugglega ekki á það bætandi fyrir Gaga að sjá myndir af Cameron í hörku kossaflensi með Taylor við tökur á myndinni. Þar eru þau reyndar í hlutverkum sínum en samt… kjaftasögurnar eru komnar af stað.
Myndin’The Other Woman’, fjallar um stelpu sem kemst að því að kærastinn hennar er giftur. Saman leggur hún svo á hefndarráð ásamt eiginkonu mannsins. Verður spennandi að sjá!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.