Það allra heitasta í heimi brúðkaupa þessa dagana eru brúðavendir úr fjöðrum.
Hægt er að láta hugmyndaflugið njóta sín og skreyta vöndinn með glamúr og glysi. Hafa vöndinn einfaldan og leyfa fjöðrunum einungis að njóta sín. Margar stelpur vilja hafa brúðarvöndinn sinn áberandi og í fallegum litum og þá er hægt að hafa fjaðrirnar í skærum og fallegum litum.
Það sem er svo snilldin á bak við þetta er að vöndurinn þinn helst heill og er mjög smart sem skreyting inn í stofu eða svefnherbergi eftir brúðkaupið.
Snilld!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.