Það er eitthvað við fallega brúðarvendi sem ég bara fæ hreinlega ekki nóg af…
Eina og margir vita elska ég brúðkaup og finnst rosalega gaman að velta þeim fyrir mér. Ég get eytt mörgum klukkutímum i að skoða myndir á netinu og það var einmitt það sem ég gerði þegar ég ákvað að skrifa þessa færslu. Brúðarvöndurinn er eitthvað sem að ég tek vel eftir og skiptir miklu máli, hann segir að mínu mati oft mikil til um persónuleika brúðarinnar og skiptir mikli máli að verðandi brúðhjón séu ánægð með vöndin, barmblómið og skreytingarnar.
Ég ákvað að búa til “mood board” og set myndirnar hér fyrir neðan með allskonar mismunandi vöndum sem mér þykja fallegir.
Það er aldrei að vita nema að einhver tilvonandi brúður fái hugmynd eftir að skoða þessa færslu…
Bjarney Vigdís er mikil áhugamanneskja um allt sem viðkemur heilsu, uppeldi, eldamennsku, tísku, förðun, handavinnu, fegrun heimilisins og öðru pjatti. Hún er menntaður förðunarfræðingur og er jafnframt framúrskarandi húsfreyja sem heldur einnig úti sinu eigin bloggi. Hún býr á vesturlandi í litlum bæ ásamt manni sínum og 6 börnum.