BALÍ: Strönd, sól, sjór, hvítur sandur á milli tánna, hiti, brúðkaup, gleði, ást, hamingja, hlátur, tár, von, veisla…
Ég hef farið í æði mörg skemmtileg og falleg brúðkaup bæði hér heima og erlendis. Þó verð ég að játa mig hefur persónulega aldrei dreymt um stórt brúðkaup með stórri veislu eða hvítan brúðarkjól með pífum. Ekki alveg minn stíll.
Þessar myndir hinsvegar heilluðu mig mikið. Parið er með fáa ástvini sína, fullkomna strönd og brúðarkjóllinn og höfuðskrautið hæfir þessarri stelpu fullkomlega!
Brúðhjónin eru áströlsk hún er listakona og heitir mandy shadforth http://www.mandys.com.au
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.