Á sumrin taka margir upp á því að láta pússa sig saman en sumarið er og hefur alltaf verið vinsælasti tíminn til þess að innsigla ástina.
Margar bíða nánast alla ævi eftir þessum degi og plana hann í bak og fyrir enda virðist sem ánægjan við hjónavígsluna sé ekki síst kjóllinn, veislan, myndirnar og maturinn eins og hún Bjarney Vigdís skrifar um í þessari færslu.
Hárið er meðal þess sem verður að vera tipp topp á stóra deginum og margar eru búnar að skoða ógrynni af greiðslum áður en sú rétta er valin.
Stelpurnar á Eplinu hárstofu eru mjög reyndar í því að gera fallegar brúðargreiðslur en hér eru nokkrar æðislegar myndir af því sem þær hafa gert upp á síðkastið. Ef þú ert ekki búin að velja þína þá gæti sú rétta hugsanlega verið í höndunum á Epladömum.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.