Eins og flestir sem fylgjast með Hollywood slúðri vita ætlar Bruce Jenner, Kardashian stjúpinn að gangast undir kynleiðréttingu á næstunni.
Í viðtali sem frumsýnt verður núna 23. apríl mun Bruce opna sig og segja Diane Sawyer allt um málið á ABC sjónvarpsstöðinni en þau sem eru með PlaymoTV reikning ættu að geta horft á viðtalið í beinni.
Það kom reyndar fæstum á óvart að kappinn ætlaði í leiðréttingu því hann hefur lengi verið kvenlegri en flestir karlar á hans aldri. Það sést vel hér í þessu skemmtilega myndskeiði þar sem hársnyrtir fjölskyldunnar mætir til leiks og Bruce vill endilega hafa það svona fínt blásið.
[youtube]https://www.youtube.com/watch?v=uMQWIidOwLg[/youtube]
Við vonum auðvitað það besta fyrir Bruce þegar stóra stundin rennur upp. Hann er langt kominn í ferlinu og nú er það bara spurning hvenær nýja nafnið verður gefið upp og hvað það verður.
Hér er glefsa úr viðtalinu við Diane sem verður frumsýnt í næstu viku:
[youtube]https://www.youtube.com/watch?v=URdu8u0pVDw[/youtube]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.