Stjúpfaðir Kim Kardashian,Bruce Jenner, hefur aðeins hitt tilvonandi tengdason og barnsföður stjúpdóttur sinnar einu sinni.
Í viðtali við slúðurblaðið Extra segir hann frá þessu:
“Hann er alltaf að vinna. Nú er hann búinn að vera í París að semja tónlist og hefur bara ekkert verið hér á svæðinu.”
Kynbomban Kim, sem er 32 ára, hefur líka klikkað á að kynna barnsföðurinn fyrir stjúpbróður sínum Brody en hann mun koma í Kardashian þættina í núverandi þáttaröð.
Heimlidir herma að Kayne ælti sér þó að kíkja í ‘Baby Shower’ til Kim í Beverly Hills á morgun en þar munu Khloe og Lamar Odom einnig mæta, sem og Kourtney og Scott Disick. Baby shower er einskonar skírnarveisla þar sem vinkonur móðurinnar og velunnarar mæta með gjafir fyrir barn og móður.
Khloe sagði við blaðamann Extra að þetta væri auðvitað aðallega stelpupartý en Kayne myndi láta sjá sig á endanum. Sérstaklega þar sem báðir hinir makar systranna hafa boðað komu sína.
Þetta er erfitt líf. Ha?
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.