Vera Wang er einn vinsælasti og eftirsóttasti fatahönnuðurinn hjá fræga fólkinu, sérstaklega þegar kemur að brúðarkjólum. Alicia Keys, Jessica Simpson, Ivanka Trump og Jessica Alba hafa allar valið kjól frá Veru Wang til að gifta sig í.
Vera Wang kynnti á dögunum brúðarkjólalínu sína fyrir næsta ár og það er gaman að sjá hversu einstaklega fallegir brúðarkjólarnir eru og nútímalegir. Myndirnar minntu óneitanlega á fögur málverk; listrænt, einstaklega kvenlegt, fágað og rómantískt.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.