Britney Spears er enginn nýgræðingur í tónlistarbransanum en meira að segja henni finnst áherslan á kynþokka kominn of langt í bransanum í dag.
Britney, sem er nýbúin að senda frá sér myndband við lagið sitt “Work Bitch”, segir að hún hafi klippt helling út úr myndbandinu vegna þess að það var einfaldlega of gróft eða sexý.
Britney á tvo syni og þegar hún var spurð hvers vegna hún ákvað að klippa svona mikið úr því svaraði hún: ” Ég er mamma og á tvo syni. Það er mjög erfitt að vera poppstjarna, reyna að vera sexý og vera mamma á sama tíma, þessi hlutverk passa öll ekkert voðalega vel saman”.
Britney sagði einnig að henni finnst hún vera þvinguð til þess að vera kynþokkafull og sýna alltaf meira og meira. Það sé ekki þægilegt að vera alltaf hálfber á sviði eða í myndböndum en öðrum söngkonum virðist ekki finnast þetta neitt tiltökumál.
Er fólk einfaldlega búið að fá nóg af allri nektinni sem er í gangi í tónlistariðnaðinum í dag, mun þetta breytast á næstunni? Satt best að segja stórefa ég það!
Kíktu á myndbandið hennar Britney hér fyrir neðan:
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=pt8VYOfr8To[/youtube]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig