Hún elsku Britney okkar Spears hefur í nægu að snúast þessa dagana, Vegas sýningin hennar gengur vel og nýtt ilmvatn væntanlegt á næstunni.
Ilmurinn hennar mun heita “Toxic” eins og lagið sem var frægt fyrir einhverju síðan og Britney birti mynd af sér með ilmvatnsglasið í hönd ásamt nýrri hárgreiðslu en daman er orðin dökkhærð aftur.
Vegas sýningin hennar hefur fengið misjafna dóma en fólk flykkist samt sem áður á sýninguna enda er Britney orðin goðsögn í lifanda lífi (vilja einhverjir meina) og flest sem hún gerir vekur athygli.
Fræga fólkið hefur ekki látið sig vanta á sýningu stjörnunnar og Britney er alsæl með hversu vel gengur og vonast til að velgengni hennar haldi áfram. Það væri nú gaman að sjá þetta show. Maður myndi amk ekki neita.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig