Allt er hægt í heimi hinna ríku og frægu og þrátt fyrir þrotlausar líkamsræktaræfingar fyrir myndbandið “Work Bitch” var Britney elskan fótósjoppuð í svokallað drasl.
Britney fékk “stafræna yfirhalningu” í myndbandinu þar sem allt sem þótti ekki líta nógu vel út á líkama hennar var lagfært, allt “hliðarspik” og svo framvegis var fiffað til, lærin minnkuð og magamálið gert grennra.
Britney sagði sjálf í viðtali á dögunum að henni þyki tónlistarheimurinn vera orðinn of kröfuharður á kynþokka og svo framvegis og það er alveg greinilegt að daman hefur ekki verið sátt með það sem hún sá (eða framleiðendur myndbandsins) og því ákveðið að smella í nokkrar lagfæringar.
Ef þetta heldur svona áfram í tónlistarheiminum í framtíðinni er voðinn vís. Það er alveg nóg að ungar stúlkur séu með átraskanir og fleiri vandamál sem tengjast útlitinu vegna fyrirsæta í glanstímaritum og ef þetta heldur áfram þá verða kröfurnar svo óraunhæfar að enginn á eftir að vita hvað er alvöru og hvað er ekki alvöru. Lestu hér góðan pistil eftir Margréti um það mál: Aldrei láta Photoshop blekkja þig – Konur eru af holdi og blóði.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=pt8VYOfr8To[/youtube]
Hér að neðan má síðan sjá nokkrar myndir af Britney fyrir og eftir…
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig