Britney blessunin Spears er ekki af baki dottin, verður bara flottari með hverju árinu og er alltaf að taka upp á einhverju nýju.
Þrátt fyrir að vera ekki alveg þekkt fyrir áberandi góðan stíl hefur hún sent frá sér mjög vinsælt ilmvatn og nú síðast undirfatalínu en hún tilkynnti að von væri á línunni á Instagram síðasta sumar og svo kom góssið á netið síðasta haust.
Línan heitir einfaldlega Intimate Britney Spears og sjálf situr hún fyrir á flestum myndum enda engin betur til þess fallin. Merkilegt nokk þá er hún ansi lík Jessicu Simpson á sumum myndum en það ætti ekki að vera leiðum að líkjast. Skvís er í toppformi og allt er fótósjoppað fram og til baka og lekkert eins og við er að búast.
Undirfötin eru sjálf nokkuð tíðindalaus en þetta er flott framtak hjá Britney sem hefur verið sexý á senunni síðustu sextán árin og heitari nú en nokkru sinni fyrr. Áfram Britney!
[youtube]https://www.youtube.com/watch?v=C-u5WLJ9Yk4[/youtube]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.