Finnst þér gaman að lesa tímarit en ert samt alltaf hangandi á netinu? Það er til flott ráð við því! Flipboard breytir Facebook, Twitter og öllu hinu í þitt persónulega tímarit, fullu af efni sem þú velur sjálf og finnst skemmtilegt.
Margir sem nota Flipboard í fyrsta sinn komast að því að heimasíða Facebook er bara hundleiðinleg!
Þar er fullt af auglýsingum og hinu þessu sem er bara að trufla þegar maður í raun og veru vill bara skoða hvað vinir manns hafa verið að segja, gera og deila.
Flipboard viðmótið er líka virkilega fallegt og lítur út alveg eins og alvöru tímarit: Þitt persónulega tímarit, bara með efni sem þér finnst skemmtilegt! Frábært!
Og best af öllu? Flipboard er ókeypis. Mundu bara að setja www.pjatt.is í tímaritið þitt! Af því við erum skemmtilegastar 😉
[youtube]https://www.youtube.com/watch?v=X5kbuB_YIIg[/youtube]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.