Þau eru bæði á lausu og bæði alveg hreint ótrúlega falleg og sjarmerandi.
Leikarinn Bradley Cooper og fyrirsætan Irina Shayk sáust stinga saman nefjum (og fleiru) í eftirpartý sem drottningin Rihanna hélt fyrir gesti galaveislunnar í Metropolitan safninu á mánudag en ekki náðist þó að smella af þeim mynd.
Orðrómur um að þessi tvö séu að bralla eitthvað saman hefur verið nokkuð hávær upp á síðkastið en engum hefur tekist að smella af þeim mynd, – ekki enn.
Þau hafa þó sést saman bæði í veislu í Hvíta Húsinu og nú síðast í þessu fræga eftirpartý. Gestir segja þó að dúllurnar hafi beðið til klukkan þrjú eða fjögur með faðmlögin, þá eflaust búin að fá sér einn eða tvo.
Bradley hætti nýverið með kærustu sinni Sukie Waterhouse en á milli þeirra var 18 ára aldursmunur. Menn segja að sambandið við Bradley hafi gert mjög góða hluti fyrir leiklistarferil Sukie sem var nokkuð dauflegur áður en hún byrjaði með Bradley. Irina Shayk hætti með fótboltastjörnunni Ronaldo fyrir nokkrum mánuðum en þá höfðu þau verið í fimm ára fjarsambandi.
Irina er 20 ára en Bradley Cooper er fertugur. Það eru þá ellefu ár á milli þeirra sem er nú ekkert til að barma sér yfir. Meiriháttar flott par ef það spilast vel úr þessu hjá þeim.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.