Bradley Cooper er á allra vörum núna eftir frábæran leik í kvikmyndinni “Silver Linings Playbook” en hann segir þó sjálfur að hann sé mjög jarðbundinn og stressist sjaldan.
Leikarinn er í viðtali við tímaritið GQ en þar talar hann meðal annars um það þegar pabbi hans dó. Hann var við hlið hans þegar hann tók síðasta andardráttinn og Bradley segir þessa upplifun hafa gjörbreytt lífi hans.
Dauðinn varð skyndilega mjög raunverulegur vegna þess að pabbi minn sem var búinn að vera í lífi mínu í 36 ár var bara f***ing farinn!
Ég horfði á hann deyja og sá hann taka síðasta andardráttinn sinn og svo var hann bara farinn. Ég upplifði þetta allt saman og mér finnst ég hafa notið forréttinda að hafa lifað þetta augnablik með honum, þetta eina augnablik sem breytti öllu.
Bradley segir einnig:
Pabbi gaf mér tvær gjafir, að eiga mig og deyja með mér. Hér áður fyrr var ég mjög stressaður áður en ég fór eitthvað út opinberlega og átti að halda ræður en núna finn ég ekki fyrir neinu og stressast ekkert. Ég get ekki stjórnað öllu.
Ég horfði á pabba deyja og ég áttaði mig á því að svona munum við öll deyja. Það hafði varanleg áhrif á mig. Taugakerfið mitt gjörbreyttist við dauða hans.
Bradley sló í gegn í kvikmyndunum “Hangover”. Margir að Hollywood vinum hans ráðlögðu honum að taka ekki þátt í kvikmyndinni en hann hlustaði ekki því honum leist vel á handritið. Hann segir líka að “vinir” í glysborginni hreinlega elski að fá þig til að segja nei við hlutverkum, samkeppnin sé svo mikil.
Leikarinn ákvað að ná tökum á lífi sínu aftur og hætti að drekka en hann segir að þannig geti hann stjórnað sér fullkomlega og missi ekki fókusinn. Bradley er ekkert of spenntur fyrir því að vinna Óskarinn því hann er nánast sannfærður um það að ef hann fengi styttuna þá myndi það skaða ferilinn hans.
Jarðbundinn og myndarlegur leikari sem lætur sér fátt um finnast um glamúrinn og glyslífið í Hollywood.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig