Hjartaknúsarinn Bradley Cooper bauð mömmu sinni að flytja inn til sín eftir að faðir hans dó en það hefur ekki reynst honum til farsældar í samböndum sínum.
Bradley er nýhættur með leikkonunni Zoe Zaldana en henni fannst afskiptasemi mömmu hans vera full mikil en Gloria, móðir Bradley, flutti fyrst inn til hans eftir andlát föður hans og hefur búið þar síðan.
Bradley segir sjálfur að það sé örugglega ekki auðvelt fyrir hana að búa ennþá hjá syni sínum tveimur árum eftir að eiginmaður hennar dó en líf þeirra sé akkúrat svona núna og þannig verði það í einhvern tíma áfram. Fjölskylda hans er mjög náin og andlát föður hans tók mikið á þau bæði og þau eru að vinna í sorginni saman.
Ekki nóg með það að Gloria búi í húsi Bradley, heldur er hún einnig í næsta herbergi við hans. Bradley finnst það allt í lagi, hann sgir mömmi sína eitursvala gellu sem hann getur talað við um allt á milli himins og jarðar við og hann myndi að sjálfsögðu ekki láta hana vera í næsta herbergi nema að hún væri með fúlle fem!
Frægð og frami skipta hjartaknúsarann engu máli hér heldur fjölskyldan, já eða mamma gamla! Sætt eða pínu krípí?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig