Brad Pitt og Angelina Jolie búa eins og rónar, já eða villimenn, ef marka má fólkið sem vinnur við að þrífa heima hjá þeim.
“Það liggja pizza kassar útum allt, matarleyfar og allskonar óþrifnaður,” sagði fyrrum starfsstúlka hjá parinu við Star Magazine.
“Þau líta kannski rosalega vel út á rauða dreglinum og fá verðlaun fyrir hvað þau eru vel klædd en heima hjá þeim er annað í gangi. Krakkarnir sex fá til dæmis að hlaupa um allt og fara í ‘tannkremsstríð’ – og það eru pizza kassar allstaðar og matarleyfar á diskum hér og þar um húsið og búið að krota með vaxlitum á veggina. Þetta er ferlega ógeðslegt”.
“Brad er líka svona safnari. Hann hrúgar bókum og tímaritum útum allt. Þetta er orðið þannig að hann hefur ekki lengur pláss en reynir að troða bókunum hingað og þangað.”
Brad sagði nýlega að hann elskaði lætin og hamaganginn á heimilinu þar sem krakkarnir Maddox,12, Pax, 9, Zahara, 8, Shiloh, 7, og tvíburarnir Vivienne og Knox, 5 ára fá að hlaupa um.
Hann sagði: “Það er stanslaust skvaldur, læti og tal heima. Hvort sem verið er að hlægja, öskra, gráta eða banka. Ég elska þetta. Elska þetta. Hata það þegar þau fara. Hata það,” sagði hann og bætti við. “Kannski er fínt að vera á hótelherbergi í einn dag, þá næ ég að lesa blaðið og svona. En næsta dag þá sakna ég hávaðasynfóníunnar.”
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.