Hann Brad nokkur Pitt er í viðtali við Esquire tímaritið og þar talar hann um fjölskylduna og lífið og tilveruna.
Brad segir að hann sé hamingjusamari núna en nokkru sinni fyrr, fyrir tíu árum síðan var hann afar duglegur að reykja Maríjúana og segir að hann hafi verið hálf týndur og alltaf skakkur, hann vissi ekkert hvað hann ætti að gera og var hálfpartinn orðinn hræddur um að hann væri búinn að reykja úr sér allt vit en síðan birtist Angelina Jolie (hann var ennþá giftur Jennifer Aniston á þessum tíma) og hreinlega bjargaði lífi hans!
Brad segir að hann hafi alltaf viljað stóra fjölskyldu en hann og Angelina eiga samtals sex börn saman og Brad segir að hann þrífist best í öllu kaosinu, hann elskar að hafa börnin hoppandi, skoppandi og öskrandi út um allt hús og ef hann er frá þeim í einn dag þá er hann farinn að sakna þeirra eftir sólahring.
Þó að Brad segi að hann hafi ekki verið hamingjusamur með Jennifer þá er ég ekki frá því að hann sé með sönu hárgreiðslu og hún núna!
Já það er greinilegt að Brad hefur ekki verið hamingjusamur með henni Jennifer sinni en ætti hann að vera að gaspra því út um allt? Er ekki óþarfi að vera að tala um þetta tíu árum síðan í fjölmiðlum? Hvað finnst þér?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig