Rússneska móðirin og ljósmyndarinn Elena Shumilova tekur alveg hreint magnaðar ljósmyndir en hún myndar að mestu börnin sín tvö ásamt dýrin sem eru á sveitabænum sem þau búa á.
Persónulega hef ég mikinn áhuga á ljósmyndum. Þessar myndir heilluðu mig algerlega upp úr skónum enda eru þær virkilega ævintýralegar og greinilegt að Elena er mjög hæfileikarík. Ég er búin að skoða þær margoft og er bara gersamlega dolfallin yfir þeim, langar bara til að eiga svona myndir af öllum börnunum okkar!
Bjarney Vigdís er mikil áhugamanneskja um allt sem viðkemur heilsu, uppeldi, eldamennsku, tísku, förðun, handavinnu, fegrun heimilisins og öðru pjatti. Hún er menntaður förðunarfræðingur og er jafnframt framúrskarandi húsfreyja sem heldur einnig úti sinu eigin bloggi. Hún býr á vesturlandi í litlum bæ ásamt manni sínum og 6 börnum.