Það er alltaf gaman þegar pjöttuðum foreldrum býðst að kaupa flott og ‘öðruvísi’ föt á krúttin.
Nýlega opnaði flott barnafataverslun í Reykjavík, nánar tiltekið í Nethyl 2 í Árbæ. Verslunin heitir því skemmtilega nafni Rokký Reykjavík og selur kúl barnaföt frá hinum ýmsum framleiðendum en nú síðast tóku þær inn föt frá 4 Funky Flavors sem er Hollensk lína. Fötin eru sannarlega fönký og smart… svolítið retró og skemmtileg á svala krakka. Minnir aðeins á dönsku Katvig fötin, litrík og sæt með allskonar mynstrum.
Smelltu til að sjá stærri myndir:
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.