Uppáhaldstaskan mín heitir City og er frá Balenciaga…
Hún kemur í mörgum litum en mér finnst nú fallegast að hafa hana svarta eða dökkgráa út í brúnt. Þessar töskur eru pínulítið grófar, hægt að fylla þær endalaust með allskonar “nauðsynlegu” dóti.
Þar sem taskan er grófgerð er mjög smart að vera í kvenlegum og þröngum svörtum buxum við og að sjálfsögðu í nokkuð háum hælaskóm.
Guðrún Gunnarsdóttir er menntuð í viðskiptafræði en hefur lengst af starfað í tískubransanum. Nú rekur hún heildsölu ásamt eiginmanni sínum. Hún er sérlegur unnandi Parísarborgar en þangað fer hún nokkrum sinnum á hverju ári. Guðrún er hrútur, fædd 1976.