Þessi bók (taska) er hönnuð fyrir MacBook & MacBook Pro tölvuna þína.
Að ganga um með “gamla bók” undir hendi, fara með bókina á kaffihús eða skella henni upp í bókahillu -engum dettur í hug að í bókinni sé eitt stykki fartalva frá apple.
Ef brotist væri inn til þín þá get ég bókað að fartalvan myndi ekki hverfa þrátt fyrir að hún væri beint fyrir framan nefið á innbrotsþjófnum -það er ef hún væri lokuð inní þessarri bók.
BookBook bókin kostar í dollurum $ 79.90 eða um 10.000 ísl. Hún er silkimjúk að innan -algert hreiður fyrir tölvuna og úr leðri að utanverðu. Svo má loka henni með rennilás.
Snilld.
/
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.