Sunnudaginn 23. febrúar (eða mánudaginn 24.feb) verður bolludagurinn haldinn hátíðlegur á Íslandi. Nú eða heilagur, ef þið hreinlega elskið bolludaginn meira en allt. Þessi skemmtilegi dagur hefur verið haldin hér á Íslandi í meira en eina öld en siðurinn er einn af þessum dönsku siðum sem hafa fest sig hér í sessi. Bolludagurinn er reyndar alltaf á mánudegi og þá sjö vikum fyrir páska en það pæla fæstir í því.
Flengingarglaðir bakarar
Talið er að bolludagurinn og flengingarnar með bolluvendinum hafi borist hingað með bökurum sem fluttu til Íslands frá Danmörku og hugsanlega Noregi líka um og eftir 1850. Skrítið? Já. Það mega reyndar ekki allir tapa sér með bolluvöndinn í dag því þetta er eini dagur ársins þar sem börnum leyfist að flengja foreldra sína. Þau eiga að byrja daginn á þessu verkefni og æpa um leið bolla! bolla!
Talið er að bakarín á Íslandi baki um eina milljón bolla fyrir bolludaginn. Það gerir um það bil þrjár bollur á mann. Þá eru ótaldar allar bollurnar sem fólk bakar sjálft.
Börnin baka bollur (bbb)
Það er góð hugmynd að leyfa börnunum að spreyta sig við bollubaksturinn í eldhúsinu. Þau geta byrjað að hræra deigið saman og þeyta rjóma.
Bollur á bolludeginum eru tvenns konar. Vatnsdeigsbollur og gerbollur. Vatnsdeigsbollur eru mjúkar og lausari í sér en gerbollurnar, sem eru soldið stífar. Tiltölulega lítið mál er að gera vatnsdeigsbollur. En auðvitað verður að vanda til verka. Hér er fínasta uppskrift af vefnum ÚllenDúllen.is
Einföld og góð uppskrift að vatnsdeigsbollum
- 3 dl vatn í pott.
- 75 gr smjör
- 3 dl hveiti
- 4-5 egg
Setjð vatnið í pott. Setjið smjörið út í og hitið undir. Hrærið smjörinu saman við vatnið og látið suðu koma upp. Hellið nú hveitinu hægt og rólega út í smjörvatnsblönduna. Hrærið þar til hveitiblandan losnar frá pottinum. Látið blönduna kólna. Setjið nú eggin út í hvert á fætur öðru og hrærið saman þar til deig er orðið til.
Notið tvær skeiðar til að búa til litlar bollur. Setjið þær á smjörpappír á bökunarplötu. Stillið ofninn á 200 gráður og bakið bollurnar í 25-40 mínútur. Mikilvægt er að opna ekki ofninn fyrstu 15 mínúturnar því þá er hætt við að bollurnar falli.
Þegar þið teljið að bollurnar eru bakaðar þá takið þið þær út og látið kólna í smá stund. Skerið bollurnar í tvo hluta. Á meðan þið bíðið er upplagt að þeyta rjóma og bræða súkkulaði. Veljið uppáhalds sultuna ykkar.
Þegar bollurnar eru orðnar kaldar þá setjið þið súkkulaði á efri hluta bollanna en sultu og rjóma innan í bolluna. Auðvitað má svo leika sér aðeins með þetta eins og t.d. að bræða Toblerone eða annað uppáhalds súkkulaði, setja Hrískúlur inn í bollurnar og allskonar meira skemmtilegt nammigrísagott.
Njótið!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.