Gat ekki staðist að setja þessar flottu ljósmyndir inn sem sýna fallegan tré-útskurð á viðarhúsum í Síberíu útskurðurinn minnir á fallega heklaðar blúndur, draumkennd og draugaleg listaverk.
Undarlega atburði sem eiga sér stað í skjóli nætur undir fullu tungli… göldróttar konur í korselettum – hver veit hvað getur gerst í svona húsi?
Takið sérstaklega eftir birtunni á myndunum en hér erum við að tala um fallega náttúrulega lýsingu við sólsetur eða sólarupprás.
Sérlega fallegt.
Ljósmyndir: Vlad Gerashimov
http://vladstudio.com/siberianwoodenhouses/index.php
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.