The Sartorialist er skemmtilegt blogg sem inniheldur myndir af fólkinu á götunni. Síðan hefur m.a verið kostin ein af 20 bestu tískubloggum heims.
Bloggið er sér á báti vegna þess að hann tekur ekki einungis myndir af konum eins og flestir götuljósmyndarar gera, heldur eru langflestar myndirnar af karlmönnum.
Ljósmyndarinn og bloggarinn á bakvið síðuna heitir Scott Schuman og hefur hann haldið blogginu uppi síðan árið 2005 með vaxandi vinsældum.
Scott sýnir heiminum að karlmenn eru svo sannarlega tísku-drottningar, ekki síður en við konurnar!
Skoðaðu meira HÉR
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.