Það er alltaf gaman að rekast á ný og flott blogg til að fylgjast með og fyrir nokkrum mánuðum rakst ég á eitt slíkt…
…Þetta er íslenskt blogg sem að ung stelpa að nafni Gerður Guðrún heldur úti.
Gerður stofnaði bloggið I have a dream árið 2009 og eins og nafnið gefur til kynna einkennist það af hlutum sem að Gerði þykja fallegir og dreymir um að eignast. Einnig er bloggið uppfullt af fallegum ljósmyndum sem tengjast yfirleitt tísku.
Það sem mér finnst frábært við þetta blogg er að Gerður er mjög dugleg að koma með nýjar og fjölbreyttar færslur þannig að maður getur nánast kíkt á það nokkrum sinnum á dag og séð eitthvað nýtt og skemmtilegt í hvert sinn.
Sjálf fylgist Gerður með bloggum á borð við Anywho, Vanillascented, Style Like U, Karla´s Closet, The fashion Warrior, Fashion Gone Rouge og fleirum.
Ég fékk að forvitnast aðeins um stelpuna á bakvið bloggið og hvað væri í uppáhaldi hjá henni þessa dagana…
Uppáhalds tímarit: Vogue, Cover, Costume, Dazed Digital og V-magazine.
Uppáhalds módel: Abbey Lee Kershaw, Freja Beha Ericssen, Lara Stone, Kristen McMenamy og Alice Delall.
Og uppáhalds íslensku módelin: Eva Katrín Baldursdóttir, Anna Baldvinsdóttir, Brynja Jónbjartsdóttir, María Birta og Danival.
Uppáhalds ljósmyndarar: Til dæmis Saga Sig, Damon Baker og hin unga Katrín Braga.
Íslensk hönnun sem heillar: Kalda, Mundi, Kron by Kronkron og Forynja.
Verslanir sem henni finnst gaman að fylgjast með: Einvera, Nostalgía, Kronkron, Mundi, Rokk og rósir, Forynja og Spúútnik.
Og hvar verslar hún förðunarvörurnar sínar?: MAC, Make up Store og Body Shop (dag-og næturkremin frá Body Shop í uppáhaldi).
Svo eru hérna nokkur lög sem eru í uppáhaldi hjá henni þessa stundina: Gallows og Werewolf eftir Cocorosie, Get some eftir Lykke Li og Obsession með Sky Ferrera.
Ég mæli með að þið fylgist með blogginu hennar Gerðar með því að smella hér, fabjúlöss…
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.