Ég verð að viðurkenna að mér finnst alltaf jafn skrítið þegar stelpur taka sjáfar eða láta taka myndir af sér samviskusamlega á hverjum degi til að sýna ‘átfitt’ dagsins…
…Svo halda þær úti bloggi og birta myndirnar með upplýsingum um hvaðan fötin koma.
EN…þó að mér finnist þetta spes þá hef ég lúmskt gaman af því að skoða þessar myndir og ég kíki reglulega á sum flottustu bloggin. Atlantic Pacific er eitt þeirra blogga sem ég reyni að skoða reglulega en Blair E, pían sem á það, er oftast mjög fín og yfirleitt ‘veii óverdressed’. Túberað hár, perlur og varalitur sama hvert tilefnið er, gaman að því!
Mæli með að þið kíkið á bloggið hjá þessari 26 ára stelpu frá San Francisco HÉR.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.