Ef það er einhver sem stígur ekki feilspor á rauða dreglinum þá er það sjálf tískudrottningin Blake Lively!
Leikkonan hefur undanfarið verið ásamt eiginmanni sínum Ryan Reynolds (37) á kvikmyndahátíðinni í Cannes og það er óhætt að segja að þau hjónin séu með þeim best klæddu á hátíðinni.
Blake og Ryan voru á rauða dreglinum fyrir frumsýningu kvikmyndarinnar The Captive en þau voru í svörtu og hvítu, í stíl að sjálfsögðu! En þrátt fyrir að vera í stíl sem mörgum myndi þykja ansi hallærislegt voru þau ótrúlega smart og flott saman.
Ryan er núna með uppáhaldsklippinguna mína og Blake, úff hún er bara alltaf flott, hárið er alltaf upp á tíu og förðunin líka. Hjónin voru afar innileg og flott saman á rauða dreglinum en þau fagna sínu tveggja ára brúðkaupsafmæli í september.
Flott par sem lætur taka eftir sér!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig